Desemberuppbót er greidd þann 1.desember ár hvert eins og um er samið í kjarasamningum. Desemberuppbótin er greidd þrátt fyrir að kjarasamningar séu lausir en misjafnt milli aðildarfélaga BSRB hvernig upphæð uppbótarinnar er reiknuð í því tilviki.
Desemberuppbótin er föst krónutala, á hana bætist ekki orlof og samið er um hana fyrir hvert og eitt ár þegar kjarasamningar eru gerðir. Þrátt fyrir að ekki hafi náðst samningar þýðir það ekki að greiðsla desemberuppbótar frestist þar til samið verður. Eðlilegt er að starfsmenn fái greidda desemberuppbót síðasta árs á þeim tímapunkti sem kjarasamningur greinir og fái svo leiðréttingu ef samnið verður um hærri uppbót í komandi kjarasamningum. Um desemberuppbót gilda almennt þær reglur að einstaklingar sem hafa verið í fullu starfi á tímabilinu janúar til október eða nóvember, misjafnt eftir kjarasamningum, fá fulla desemberuppbót.
Sjá nánar https://www.bsrb.is/is/frettakerfi/desemberuppbot-greidd-tho-samningar-seu-lausir