BSRB hefur samið við Capacent Gallup um kjara- og viðhorfskönnun meðal allra aðildarfélaga bandalagsins. Hún mun verða ein af stærstu og veigamestu launa- og vinnumarkaðskönnunum landsins. Félagsmenn BSRB mega eiga von á hringingu á næstu dögum og vikum þar sem þeim verður boðin þátttaka í könnuninni. Sjálf könnunin verður svo send rafrænt út í mars og mun gagnaöflun fara fram þann mánuðinn.
Könnunin skapar mikilvægan grunn til samanburðar og rannsókna á launaþróun meðal félagsmanna BSRB.