
Icelandair gjafabréfið kostar 18.000 kr en gildir sem 25.000 kr greiðsla upp í öll áætlunarflug Icelandair, bæði innanlands og utan. Icelandair gjafabréfin er hægt að kaupa á orlofsvef STH. Gjafabréf er keypt með því að fara inná STH orlofsvefinn, undir liðnum ávísanir.
Skilmálar gjafabréfs:
- Gjafabréfin eru handhafa gjafabréf.
- Gjafabréfið gildir fyrir pakkaferðir í beinu áætlunarflugi og til allra áfangastaða Icelandair. Ferð skal bókuð hér á heimasíðu Icelandair.
- Hver félagsmaður getur keypt 7 gjafabréf.
- Bókun er skráð með því að velja flug og skrá farþega
- Á greiðslusíðunni skal velja að greiða með gjafabréfi og slá in gjafabréfskóðann sem er á gjafabréfinu
- Ef bókað er hjá sölumanni gilda reglur Icelandair um þjónustugjöld. Eftir útgáfu farseðils gilda reglur fargjaldsins um breytingar og fleira.
- Gjafabréf þarf að nota innan gildistímans þ.e bæði brottför og heimkoma.
Allar leiðbeiningar um notkun gjafabréfa á heimasíðu Icelandair eru hér.
Athugið:
Gjafabréfin fást ekki endurgreidd af Starfsmannafélagi Hafnarfjarðar eða Icelandair.