Umsamin launakjör í kjarasamningum opinberra starfsmanna árið 2011 voru sambærileg og í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Þrátt fyrir þetta hafa laun starfsmanna á almennum vinnumarkaði hækkað að meðaltali umfram laun opinberra starfsmanna. Það bendir til þess að umsvif á almennum vinnumarkaði séu að aukast, þar sem þessar launahækkanir eru langt umfram kjarasamningsbundnar hækkanir.
Samkvæmt nýjustu tölum Hagstofu Íslands hækkuðu regluleg laun að meðaltali um 1,6% á fjórða ársfjórðungi 2011 miðað við fjórða ársfjórðung 2010. Hækkun launa 2011 á fjórða ársfjórðung frá fyrra ári var um 8,7% að meðaltali, hækkunin var 9,4% á almennum vinnumarkaði og 7,2% hjá opinberum starfsmönnum. Hækkun launa hjá starfsmönnum á almennum vinnumarkaði nema því að meðaltali 2,2% umfram launahækkanir opinberra starfsmanna ef miðað er við hækkun á fjórða ársfjórðung 2011 frá fyrra ári.