Munaðarnes
Opnað var fyrir leigu á nýbyggðu orlofshúsi félagsins í Eyrarhlíð sumarið 2022.
-Eyrarhlíð 38: með tveimur svefnherbergjum.
Húsið er allt hið glæsilegasta. Þar er að finna er allan venjulegan húsbúnað, góðan pall með heitum potti og garðhúsgögnum. Í húsinu eru tvö svefnherbergi og svefnpláss fyrir 8. Reykingar bannaðar. Ekki er heimilt að hafa hunda, ketti eða önnur gæludýr í sumarhúsunum. Golfvöllurinn Glanni er 9 holu völlur í næsta nágrenni.
Sumar- og vetrarleiga.