Ágætu félagsmenn STH.
Orlofsvefurinn verður opnaður fyrir haustleigu, helgar og vikuleigu, fimmtudaginn 18. ágúst, gildir þá reglan fyrir útleigu orlofshúsa „fyrstur kemur, fyrstur fær“.
Vakin er athygli á því að eingöngu er um ræða orlofshús félagsins í Stykkishólmi því orlofshúsin í Reykjaskógi og Munaðarnesi fara nú í nauðsynlegt viðhald eftir annasamt útleigutímabil en opnað verður fyrir útleigu þeirra húsa jafnskjótt og framkvæmdum lýkur.
Sótt er um á orlofsvef á heimasíðu STH. Orlofsvefurinn https://sthafn.is/orlofsmal/ er opinn allan sólarhringinn. Fyrstur bókar og greiðir, fyrstur fær.