Sala er hafin á Hótel Eddu gistimiðunum á orlofsvefnum okkar. Verðið á gistimiðanum fyrir félagsmenn STH er kr. 6.500.
Gistimiðinn gildir fyrir tvo í gistingu í tveggja manna herbergi með handlaug í eina nótt. Morgunverður er ekki innifalinn.
Leyfilegt er að taka með sér 1-2 börn í herbergi án þess að greiða aukalega ef fólk hefur svefnpoka eða rúmföt. Hótel Edda útvegar þá dýnu.
Edduhótelin eru 12 hringinn í kringum landið. Opnunartími Edduhótelanna er misjafn og eru félagsmenn hvattir til að kynna sér þá á heimasíðu Eddu-hótelanna www.hoteledda.is Ekki er hægt að bóka gistingu á heimasíðunni með stéttarfélagsmiða aðeins í síma 444-4000.