Fræðslufundur í tengslum við starfslok.
Fundurinn verður mánudaginn 3. febrúar 2014 kl. 15:15 í húsnæði BSRB Grettisgötu 89, 1. hæð.
Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum aðildarfélaga innan BSRB sem eru að nálgast starfslok eða eru nýlega hættir störfum.
Skráning hefst 15. janúar 2014 á netfangið: johanna@bsrb.is og í síma
525 8306.
Dagskrá: 3. febrúar 2014
15:15: Ágústa H. Gísladóttir forstöðumaður réttindamála hjá LSR – Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins – Lífeyrisréttindi hjá LSR
15:45: Þórdís Ingvadóttir sérfræðingur hjá LSS – Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga – Lífeyrismál við starfslok
16:15: Kynning á störfum sjálfboðaliða Rauða krossins- Bergdís Kristjánsdóttir
16:30: Kaffi
16:45: Ásta Arnardóttir frá Tryggingastofnun – Lífeyrisþegar og almannatryggingar
17:15: Kynning á starfi U3A Reykjavík (The University of the Third Age) – Ásdís Skúladóttir leikstjóri
17:30: Jóhann Ingi Gunnarsson sálfræðingur – Ár fullþroskans