Vorum að opna fyrir umsóknir um sumarhúsin sumarið 2019. Umsóknarfrestur rennur út þann 8. apríl Sótt er um í gegnum heimasíðuna okkar www.sthafn.is undir orlofsvefur. Til að komast á orlofsvefinn þarf Íslykil eða rafræn skilríki. Á forsíðu orlofsvefsins er sótt um þar sem stendur Umsóknir á miðri síðunni. Sumarhúsin sem eru í boði eru Siggubær í Reykjaskógi, Stekkjarhóll 75 í Munaðarnesi, Amalíuborg í Stykkishólmi, Eyrarhlíð 38 í Munaðarnesi og sumarhús nr. 15 á Eiðum. |