• Í brennidepli

Réttindamál – Réttur til launa í veikindum

Réttindamál - Réttur til launa í veikindum

Hinn 5. mars sl. féll dómur í Félagsdómi í máli nr. 13/2024 þar sem staðfest var sú túlkun sem BSRB og önnur heildarsamtök launafólks hafa haldið fram um rétt til launa í veikindum vegna fyrri þjónustualdurs hjá hinu opinbera.

BSRB og önnur heildarsamtök launafólks hafa haldið fram að opinberir starfsmenn eigi rétt á að fyrri þjónustualdur þeirra sé metinn ef þeir hafa einhvern tímann starfað samfellt í meira en 12 mánuði hjá ríki, sveitarfélagi eða sjálfseignarstofnunum sem kostuð er af almannafé. Þessir 12 mánuðir þurfa því ekki að vera í beinum tengslum við ráðningu fólks þegar þar verður óvinnufært vegna veikinda enda kemur það hvergi fram í kjarasamningi.

Félagsdómur taldi túlkun Sambands íslenskra sveitarfélaga í stuttu máli ekki fá stoð í orðalagi ákvæðisins. Sambandið vísaði til dreifibréfs fjármálaráðuneytisins frá árinu 2007 máli sínu til stuðnings en Félagsdómur taldi það ekki geta haft þýðingu þar sem ákvæði kjarasamnings gildi einfaldlega samkvæmt orðalagi sínu. Dreifibréf sem samin eru einhliða af öðrum aðila kjarasamnings geta þannig ekki falið í sér samræmda túlkun beggja aðila kjarasamnings.

Niðurstaða Félagsdóms var því að félagskona Kjalar ætti rétt til 273 daga í launuðum veikindum, enda hafði hún starfað í meira en tólf ár hjá opinberum launagreiðendum og í meira en tólf mánuði samfellt á einhverjum tímapunkti en það tímabil þurfi ekki að vera í beinum tengslum við núverandi ráðningu. BSRB fagnar þessari niðurstöðu og vonar að ekki þurfi að koma til frekar ágreinings vegna mála sem þessara framvegis, enda ákvæði kjarasamnings skýr hvað þetta varðar.

Heimild, frétt BSRB: https://www.bsrb.is/is/frettir/frettasafn/nyrdomurfelagsdoms

Dóminn í heild sinni má finna hér.