Helluhraun 14 220 Hafnarfjörður

Helluhraun 14 220 Hafnarfjörður

Helluhraun 14 220 Hafnarfjörður

Stytting vinnuvikunnar

Kæru félagar í STH

Meðfylgjandi upplýsingabréf formanns BSRB fjallar ítarlega um styttingu vinnuvikunnar á vinnustöðum þar sem unnið er í dagvinnu. Fyrsta skrefiðí ferlinu er  að stofna vinnutímanefnd með fulltrúum starfsfólks og stjórnenda á hverjum vinnustað sem undirbýr breytinguna og leiðir samtalið á vinnustaðnum.

Stytting vinnuvikunnar er eitt stærsta viðfangsefni BSRB og aðildarfélaga þess. Á einhverjum vinnustöðum er samtalið þegar hafið og á öðrum hefst það á næstunni.  Mikilvægt er að áður en sú vinna fer af stað að fólk hafi sem besta yfirsýn og upplýsingar um verkefnið.

Aðildarfélög BSRB munu standa með misjöfnum hætti að kynningu og undirbúningi til sinna félaga en á sameiginlegu borði BSRB er unnið að kynningarefni sem við í STH munum birta á okkar heimasíðu. 

Samkvæmt nýlegum kjarasamning er gert ráð fyrir að nýtt fyrirkomulag vinnutíma í dagvinnu taki gildi eigi síðar en 1. janúar 2021 og í vaktavinnu 1. maí 2021.

Sameiginlegt verkefni okkar allra og vinnustaðanna er að ná samkomulagi um breytt skipulag vinnutíma og styttingu vinnuvikunnar niður í 36 stundir, það er til mikils að vinna í þessu tímamóta umbótarverkefni.  

Með baráttu kveðju,
Karl Rúnar Þórsson
formaður STH

Stytting vinnuvikunnar - Kynningarmyndband

Stytting vinnuvikunnar í dagvinnu - Kynningarmyndband

Stytting vinnuvikunnar í vaktavinnu - Kynningarmyndband