Mannauðssjóðurinn Hekla

Mannauðssjóður Samflots, Mannauðssjóður Kjalar og Mannauðssjóður KSG hafa sameinast undir merkjum nýs mannauðssjóðs, Mannauðssjóðsins Heklu. Sameining sjóðanna byggir á bókun 3 í kjarasamningum frá árinu 2024. Mannauðssjóðurinn Hekla hefur það hlutverk að veita styrki til fræðsluverkefna á vegum sveitarfélaga og stofnanna þeirra sem tengjast markvissri starfsþróun starfsfólks sveitarfélaga. Hekla tekur yfir alla starfsemi eldri mannauðssjóða. Á heimasíðu Heklu https://www.mannaudssjodur.is/ geta sveitarfélög, vinnustaðir og stofnanir sótt um styrki fyrir námskeiðum og starfsþróun þeirra starfsmanna sem eru sjóðfélagar í Mannauðssjóðnum Heklu.Sjá nánar fréttir og upplýsingar af starfi Heklu hér:

