• Kjaramál

Persónuuppbót greidd í desember

Karl Rúnar Þórsson1. desember, 2025
Persónuuppbót í desember

Samkvæmt kjarasamning á starfsmaður í 100% starfshlutfalli að fá greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert. Greitt er hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma síðustu 12 mánuði fyrir greiðsludag. Hafi starfsmaður látið af störfum á árinu vegna aldurs skal hann fá greidda persónuuppbót hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.

Samkvæmt kjarasamningi STH við Hafnarfjarðarbæ og Samband íslenskra sveitarfélaga grein 1.7 Persónuuppbót:

Persónuuppbót miðað við 100% starfshlutfall á samningstímanum verður sem hér
segir: 1. desember 2025 kr. 140.000.