• Fréttir

Vel heppnaður aðalfundur STH

Karl Rúnar Þórsson20. maí, 2026
""

Aðalfundur Starfsmannafélags Hafnarfjarðar fór fram í húsnæði félagsins að Helluhrauni, 12. maí síðastliðinn. Störf aðalfundar voru hefðbundin, formaður fór yfir ársskýrslu stjórnar og félagsins á starfsárinu, ársreikningur var samþykkur og stjórnarkjör fór fram samkvæmt útskiptireglu félagsins.

Formaður félagsins Karl Rúnar Þórsson var endurkjörin til tveggja ára, þá var kosið um tvo meðstjórnendur til tveggja ára og gáfu þrír aðilar kost á sér til þeirra verka. Hulda Sigríður Salómonsdóttir sem starfar sem stuðningsfulltrúi í skóla og Sigríður Bylgja Guðmundsdóttir sem starfar sem sundlaugarvörður gáfu báðar kost á sér til endurkjörs í aðalstjórn. Þá gaf Alexander Árnason starfsmaður í skóla og sundlaug jafnframt kost á sér í aðalstjórn en hann hefur starfað sem varamaður í stjórn félagsins.

Niðurstaðan varð sú að þær Hulda og Sigríður hlutu endurkjör og starfar því stjórn félagsins óbreytt fram að næsta aðalfundi. Þeir Alexander Árnason starfsmaður í skóla og sundlaug og Heimir Ásgeirsson sem starfa að málefnum fatlaðra voru svo sjálfkjörnir fram að næsta aðalfundi sem varamenn í stjórn. Þá voru félagslegir skoðunarmenn reikninga þeir Magnús Baldursson og Sigurður Haraldsson endurkjörnir.

Á fundinum var nokkur umræða um lög félagsins og var samþykkt að fela stjórninni að vinna að nauðsynlegri endurskoðun og leita liðsinnis lögfræðings BSRB við verkið sem síðan yrði lagt til umræðu á næsta aðalfundi. Þá fór fram kynning á framkvæmdum við nýtt orlofshús félagsins í Reykjaskógi sem gert er ráð fyrir að verði fullbúið í haust. Að fundi loknum var boðið upp á góðar veitingar og félagsfólk tók upp óformlegra spjall, þótti fundurinn í heild vera vel heppnaður.