- Tilkynningar
Opinn fundur með oddvitum í Bæjarbíó

Verkalýðsfélagið Hlíf og Starfsmannafélag Hafnarfjarðar bjóða oddvitum þeirra framboða sem bjóða fram lista í bæjarstjórnarkosningunum 16. maí að koma til fundar við kjósendur í Bæjarbíói, þriðjudaginn 5. maí næstkomandi. Fundurinn hefst kl. 17:00.
Á fundinum verður lögð megináherlsla á þau málefni sem telja má að skipti hafnfirskt launafólk mestu máli. Þar má nefna húsnæðismál, ekki síst félagslegar lausnir í húsnæðismálum og leigumarkað, dagvistarmál út frá hagsmunum foreldra, barna og starfsfólks, málefni bæjarbúa af erlendum uppruna, útvistun verkefna og hvernig Hafnarfjarðarbær geti bætt þjónustu sína, orðið framúrskarandi og eftirsóttur vinnustaður.
Á fundinum gefst oddvitunum færi á að kynna stefnu sinna framboða og sitja síðan fyrir svörum fundarmanna. Fundar- og umræðustjóri verður Andri Ólafsson, fyrrverandi fréttamaður.
Fundurinn fer fram á íslensku, en framsögur, spurningar og svör verða þýdd jafnóðum yfir á ensku og birt á textaskjá.
Allir íbúar Hafnarfjarðar hjartanlega velkomnir. Boðið verður upp á kaffi og gosdrykki á staðnum.







