- Fréttir
Sveitarfélag ársins 2026 – taktu þátt í könnuninni

Nú stendur yfir viðhorfskönnunin Sveitarfélag ársins 2026 og hvetjum við félagsfólk Starfsmannafélags Hafnarfjarðar sem starfar hjá Hafnarfjarðarbæ, til að taka þátt.
👉 Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan til að taka þátt í könnuninni:
https://kannanir.gallup.is/wix/p294325345450.aspx
Þú þarft aðeins að slá inn kennitöluna þína og velja „Senda svör“ til að taka þátt.
Hverjir geta tekið þátt?
Félagsmenn Starfsmannafélags Hafnarfjarðar sem starfa hjá Hafnarfjarðarbæ, geta tekið þátt í könnuninni.
Ef þú færð þessi skilaboð
„Þú hefur þegar lokið við að svara þessari könnun. Þakka þér kærlega fyrir þátttökuna.“
Þá hefur þú þegar svarað könnuninni. Við þökkum þér fyrir þátttökuna.
Ef skilaboðin eru:
„Vinsamlegast athugaðu hvort notendanafnið sé rétt skráð inn og prófaðu aftur.“
gæti verið að þú eigir ekki rétt á þátttöku. Í því tilfelli er best að hafa samband við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Vinningar
Sjö heppnir þátttakendur verða dregnir út og hljóta 15.000 króna vinning hver.
Lokadagur
Síðasti dagur til að svara könnuninni er 1. júlí.
Við hvetjum félagsfólk til að taka þátt og leggja sitt af mörkum til að skapa betri vinnustaði innan sveitarfélaganna.







