• Fréttir

Afnám áminningarskyldu

STH28. janúar, 2026

Vill ríkisstjórnin auka líkur á því að venjulegir opinberir ríkisstarfsmenn verði fyrir óréttmætri og ómálefnalegri uppsögn?

Í gær áttu heildarsamtökin; Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Kennarasamband Íslands og BSRB fund með fjármálaráðherra vegna áforma ríkisstjórnarinnar um að afnema í lögum áminningarskyldu starfsfólks ríkisins.

Því hefur verið mótmælt að engin gögn eða greining hafi verið lögð fram sem rökstyður nauðsyn lagabreytingarinnar og virðist því ákvörðunin vera fyrst og fremst pólitísk ákvörðun og beinast gegn réttindum opinberra starfsmanna sem starfa hjá ríkinu. Áminningarskylda starfsfólks sveitarfélaga er hins vegar bundin kjarasamningum ekki lögum.

Andstaða heildarsamtakanna snýr ekki að því að verja fólk sem stendur sig ekki í vinnunni. Heildarsamtökin standa hins vegar vörð um þau réttindi félagsfólks og það vinnulag sem hefur náð að fyrirbyggja að venjulegt starfsfólk verði mögulega fyrir óréttmætri og ómálefnalegri uppsögn. Ríkið og stjórnendur þess ættu því fremur að beina sjónum sínum að því að beita áminningarskyldunni í samræmi við tilgang hennar, í stað þess að leitast við að afnema hana.

Meðfylgjandi hér að neðan, er sameiginlegt bréf heildarsamtakanna sem undirbúa frekari viðbrögð.