• Fréttir
  • Kjaramál

Vegna hópuppsagnar hjá Hafnarfjarðarbæ

Karl Rúnar Þórsson3. nóvember, 2026
""

Starfsmannafélag Hafnarfjarðar hefur átt samtal við þá félagsmenn STH sem sagt var upp störfum í hópuppsögn Hafnarfjarðarbæjar í síðustu viku. Fundir eru fram undan þar sem farið verður yfir lögmæti og réttindi við starfslok sem og hugsanleg næstu skref. STH harmar það að Hafnarfjarðarbær þurfi að bregðast við rekstrarvanda með jafn íþyngjandi aðgerðum og raun ber vitni sem óneitanlega ef horft er í baksýnisspegilinn, setur spurningarmerki við rekstur bæjarfélagsins fram að þessum hremmingum. Óveðursský hrannast ekki upp á einni nóttu.

STH minnir á að gæði opinberrar þjónustu snýst að stórum hluta um það starfsfólk sem veitir öðru fólki, íbúum bæjarins hina opinberu þjónustu. Því er brýnt að vel sé staðið að mannauðsmálum og vinnuumhverfi starfsfólks og unnið verði að trausti og stöðugleika á vinnustöðum í kjölfar þessa áfalls.