• Kjaramál

Kjarasamningur STH og aðildarfélaga BSRB er enn í gildi

Karl Rúnar Þórsson28. ágúst, 2026
""

Vegna frétta um verðbólgu og stöðu kjarasamninga á opinberum vinnumarkaði og umræðu um það hvaða þýðingu þetta hefur fyrir stéttarfélög á opinberum vinnumarkaði og félagsfólk. Vill STH árétta að kjarasamningar aðildarfélaga BSRB eru enn í gildi og hafa gildistíma til ársins 2028 að öllu óbreyttu.

Hver er staðan núna?

Á almennum vinnumarkaði er ákveðið skilyrði, forsendur, í kjarasamningum sem nú hafa ekki staðist. Verðbólgan mælist yfir 4,7% og því hefst nú samtal milli ASÍ og Samtaka atvinnulífsins (SA) um hvernig eigi að bregðast við stöðunni. Ef ekki næst samkomulag í því samtali geta stéttarfélög á almennum vinnumarkaði og SA sagt kjarasamningunum upp fyrir 8. október næstkomandi.

Hvað þýðir þetta fyrir opinbera vinnumarkaðinn?

Kjarasamningar okkar á opinberum vinnumarkaði hafa önnur ákvæði við þessar aðstæður. Ef samið verður um launa- eða kjarabreytingar á almennum vinnumarkaði eigum við að taka upp viðræður um hvernig þær breytingar eiga að koma inn í okkar samninga. Markmiðið er að tryggja sambærilegar kjarabætur og samið er um á almennum vinnumarkaði.

BSRB félögin telja mikilvægt að brugðist sé sérstaklega við stöðu þeirra sem verðbólga og háir vextir bitna hvað harðast á. BSRB er nú í samtali við stjórnvöld og aðra aðila vinnumarkaðarins um það.

Ef kjarasamningum á almennum vinnumarkaði verður sagt upp, höfum við á opinberum vinnumarkaði heimild til að segja okkar kjarasamningum sömuleiðis upp. Það þýðir að samningar okkar yrðu ekki sjálfkrafa lausir heldur er það ákvörðun aðildarfélaganna hvort nýta eigi þá heimild.

Það er því engin breyting á okkar kjarasamningum í dag. Þeir eru í gildi og áfram verður unnið að því að verja kjör félagsfólks og bregðast við þeirri stöðu sem upp er komin.