- Fréttir
Uppskeruhátíð Sveitarfélags ársins 2026

Hekla – mannauðssetur og sjóður býður til uppskeruhátíðar fimmtudaginn 15. október kl. 14:00.
Á hátíðinni verða kynntar helstu niðurstöður könnunarinnar Sveitarfélag ársins 2026, auk þess sem boðið verður upp á áhugaverð erindi um starfsumhverfi, vellíðan og andlega líðan á vinnustöðum.
🎤 Á dagskrá:
Tómas Bjarnason, sviðsstjóri stjórnenda- og vinnustaðaráðgjafar hjá Gallup, kynnir helstu niðurstöður könnunarinnar um Sveitarfélag ársins 2026.
Guðrún Rakel Eiríksdóttir, klínískur sálfræðingur og doktorsnemi við Háskólann í Reykjavík, flytur erindið:
„Andleg líðan í vinnu – hvað geta vinnustaðir gert?“
Í erindinu fjallar hún um álag, stuðning og þær aðstæður sem skipta máli fyrir andlega líðan starfsfólks.
📅 Dagsetning: Fimmtudagurinn 15. október 2026
🕑 Tími: Kl. 14:00
💻 Beint streymi: www.mannaudssjodur.is
✨ Við hvetjum öll áhugasöm um mannauðsmál, starfsumhverfi og vellíðan á vinnustöðum til að fylgjast með!
#SveitarfélagÁrsins2026 #Hekla #Mannauðsmál #Vinnustaðamenning #AndlegLíðan






