• Orlofsmál

Sumarúthlutun STH 2026

Skarphéðinn Kristjánsson24. febrúar, 2026

SUMARÚTHLUTUN 2026

Starfsmannafélag Hafnarfjarðar

Umsóknarfrestur er til og með 10. mars.


Hvernig sæki ég um

Sótt er um á orlofsvef félagsins
Til að skrá sig þarf Íslykil eða rafræn skilríki

  1. Skráðu þig inn
  2. Farðu á forsíðu orlofsvefsins
  3. Veldu „Umsóknir“

Orlofshús í boði (10 úthlutanir hvert hús)
Orlof að eigin vali – 60.000 kr. (60 úthlutanir)


🏡 SIGGUBÆR – REYKJASKÓGUR

Siggubær í Reykjaskógi stendur á fallegum stað í Reykjaskógi á Suðurlandi, húsið er eitt vinsælasta orlofshús félagsins og hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Stutt í Gullfoss, Geysi og þessi helstu kennileyti á Suðurlandi. Húsið er búið hjónaherbergi, kojuherbergi og svefnlofti.

  • Stutt í Gullfoss og Geysi
  • Hjónaherbergi
  • Kojuherbergi
  • Svefnloft

🏡 AMALÍUBORG – STYKKISHÓLMUR

Amalíuborg í Stykkishólmi er glæsilegt orlofshús í frístundabyggðinni Arnarborg, sem er í göngufjarlægð frá Stykkishólmi. Skipt var um heitan pott í húsinu árið 2025. Húsið er búið hjónaherbergi, kojuherbergi og svefnlofti.

  • Hjónaherbergi
  • Kojuherbergi
  • Svefnloft

🏡 SUMARHÚS NR. 15 – Eiðar

Sumarhús nr. 15 á Eiðum stendur á fallegum stað við Eiðavatn á Austurlandi. Húsið er elsta orlofshús félagsins og hefur nær eingöngu verið leig út á sumrin. Húsið er lítið en mjög notalegt. Árið 2025 var settur heitur pottur. Um 15 mínútna akstur er í húsið frá Egilsstöðum. Húsið er búið þremur svefnherbergjum og rúmstæði fyrir 6 manns. Húsinu fylgir árabátur við bátaskýli og veiðileyfi við Eiðavatn. Í bátaskýlinu eru björgunarvesti fyrir börn og fullorðna.

  • Þrjú svefnherbergi (6 manns)
  • Árabátur og veiðileyfi
  • Svefnloft
  • 15 mín frá Egilsstöðum

🏡 EYRARHLÍÐ 38 – MUNAÐARNES

Eyrarhlíð 38 í Munaðarnesi er glæsilegasta hús félagsins. Orlofshúsið var byggt árið 2022 og er staðsett á einu flottasta orlofshúsasvæði landsins. Húsið er með tveimur hjónaherbergjum auk kojuherbergis.

  • Tvö hjónaherbergi
  • Kojuherbergi
  • Staðsett á einu flottasta
  • orlofshúsasvæði landsins

Orlof að eigin vali

Félagið ráðstafar 3.600.000 kr. í orlof að eigin vali á árinu 2026 (60.000 kr. per úthlutun). Fái félagsmaður orlof að eigin vali þarf að skila inn kvittun eigi síðar en 31. október 2026. Athugið að styrkurinn kemur fram sem laun og þarf að greiða staðgreiðslu af honum á næsta álagningarári.

Hægt er að fá greitt fyrir:

  • Gistingu (hótel, gistihús, tjaldstæði)
  • Leigu á hjólhýsi / fellihýsi / tjaldvagni
  • Skipulagðar hópferðir
  • Fargjöld – Flug, rútu eða ferju

Ekki er greitt fyrir:

  • Orlofshús á orlofsvef STH
  •  Flugávísanir
  • Skila þarf kvittun fyrir 31. október 2026
  • Styrkurinn telst sem laun og greidd er staðgreiðsla

Mikilvægar upplýsingar

Munum að ganga vel um orlofseignir félagsins, við eigum þær saman. Einnig er gagnlegt að senda ábendingar um hvað má betur fara á sthafn@sthafn.is. Ef það er símanúmer hjá umsjónarmanni í eigninni má einnig senda eða hringja ef eitthvað er bilað/mjög aðkallandi.

Ábendingar má senda á:
📧 sthafn@sthafn.is

Frétt – Nýtt orlofshús í vændum

Í öðrum fréttum þá er Starfsmannafélag Hafnarfjarðar búið að kaupa lóð að Gunnarsbraut 8 í Reykjaskógi. Vonir standa til að hægt verði að leigja út nýtt orlofshús félagsins á því svæði næsta vetur. Lóðin er tveimur húsum frá Siggubæ og hefjast framkvæmdir í vor.

  • Tveimur húsum frá Siggubæ
  • Framkvæmdir hefjast í vor
  • Stefnt að útleigu næsta vetur