• Tilkynningar

Samstöðutónleikar 1. maí – frítt inn!

Karl Rúnar Þórsson29. apríl, 2026
""

Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og Verkalýðsfélagið Hlíf standa fyrir samstöðutónleikum í Bæjarbíói 1. maí kl. 14:00.

Fram koma:

  • Una Torfa
  • Valdimar
  • HúbbaBúbba

Frítt er inn á meðan húsrúm leyfir og veitingar verða í boði.

Húsið opnar kl. 13:30 og er gestum bent á að mæta tímanlega þar sem búast má við góðri aðsókn.

Komum saman, sýnum samstöðu og njótum samverunnar á þessum mikilvæga degi.
Gos og sælgæti í boði.